Nýjast á Local Suðurnes

Nokkrir ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt

Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Einn þeirra reyndist aka sviptur ökuréttindum. Sá sem hraðast ók mældist á 107 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km á klukkustund.

Þá voru skráningarmerki fjarlægð af fjórum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar og einn ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna