Guðbrandur skákar Ingu Sæland

Undanfarin misseri hefur Inga Sæland, félags-og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, verið á milli tanna fólks, vegna hinna ýmsu mála. Töluvert hefur verið hnýtt í Ingu á vef mbl.is, nú síðast vegna húsnæðiskaupa.
Samkvæmt hinu alræmda Smartlandi þeirra Moggamanna hefur Inga fjárfest í fjöldanum öllum af fermetrum í Reykjavík og á Ólafsfirði.
Guðbrandur Einarsson , vaskur þingmaður okkar Suðurnesjamanna, skákar Ingu þó þegar kemur að fermetrum í húsnæði, en samkvæmt SmartlandsMörtu Maríu heldur Inga utan um hvorki meira né minna en 328 fermetra að gólffleti í sveitarfélögunum tveimur. Guðbrandur, eða FermetraBubbi, eins og hann er kallaður af gárungunum, heldur hinsvegar utanum 330 fermetra gólffleti í Reykjanesbæ og í Vaðnesi. Guðbrandur telur hins vegar allt til í þeirri viðleitni að skáka Ingu um báða fermetrana og tekur tvo 15 fermetra skúra með í jöfnuna, eins og sjá má í Fésbókarfærslu kappans hér fyrir neðan.
