Almannavarnir: Ekki vera á ferðinni eftir kl. 17
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir ofsaveðrið, sem spáð hefur verið, muni fyrst skella Suðurlandi. Ekki sé ráðlegt að vera á ferðinni þar eftir klukkan 12 á hádegi. Á öðrum stöðum á landinu, og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan 17.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Spáð er austan ofsaveðri á morgun og fram á þriðjudag á öllu landinu með snjókomu og byl. Mikill vindhraði er í kortunum.
„Gera má ráð fyrir mikilli ófærð á landinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi hefur verið ákveðið að loka þjóðvegi 1 frá Markarfljóti að Breiðamerkurlóni fyrir allri umferð klukkan 12:00 á hádegi. Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði verða að öllum líkindum lokað klukkan 16:00 ef veðurspá gengur eftir og fleiri leiðir í framhaldinu, en frekari upplýsingar verða birtar á vefsíðu Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is og í upplýsingasíma 1777 og 1779. Ekkert ferðaveður verður ef spár ganga eftir,“ segir í tilkynningunni.