Nýjast á Local Suðurnes

Friðjón lætur af störfum

Friðjón Ein­ars­son, formaður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæj­ar og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hyggst láta af störf­um um ára­mót­in. Friðjón verður 67 ára í haust og segir hann aldurinn vera ástæðuna í samtali við Morg­un­blaðið, sem birti frétt um málið.

Friðjón hef­ur leitt lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykja­nes­bæ frá ár­inu 2010 og þar af verið í meiri­hluta frá ár­inu 2014.