Nýjast á Local Suðurnes

Opnað fyrir styrkumsóknir í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Menningarráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar. Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2017 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2017 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða á skrifstofu menningarfulltrúa á Tjarnargötu 12 í síðasta lagi 6. febrúar n.k.

Hér má lesa reglur Menningarsjóðs.