sudurnes.net
Opnað fyrir styrkumsóknir í Menningarsjóð Reykjanesbæjar - Local Sudurnes
Menningarráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar. Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2017 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2017 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu. Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða á skrifstofu menningarfulltrúa á Tjarnargötu 12 í síðasta lagi 6. febrúar n.k. Hér má lesa reglur Menningarsjóðs. Meira frá SuðurnesjumAuglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð ReykjanesbæjarAuglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð ReykjanesbæjarAuglýst eftir styrkumsóknum í MenningarsjóðNjarðvíkingar fagna 10 ára afmæli Ungmarks – Landsliðsmenn litu í heimsóknIsavia styrkir björgunarsveitirnar veglega – Setja upp búnað til að bregðast við hópslysumFasteignaskattar hækkað langmest í Reykjanesbæ yfir 6 ára tímabilVilja bjóða út rekstur heilsugæslu – Ættu að vera þrjár stöðvar á SuðurnesjumAuka þjónustu og stuðning við íbúa í viðkvæmri stöðuAfsláttur af notendagjöldum á Keflavíkurflugvelli minnkar árstíðarsveiflurNý hringtorg á Reykjanesbraut – Stefna á útboð í maí