Foreldrar ætla að vakta strætó – Reiði eftir Facebook-færslu
Nokkrir foreldrar í Reykjanesbæ munu ætla sér að mæta í strætisvagna í Reykjanesbæ í dag, eftir að skóla lýkur, til að hafa eftirlit með börnum í vögnunum, en mikil umræða og reiði hefur blossað upp í Reykjanesbæ eftir að birt var færsla á Facebook-síðu sem ætluð er íbúum sveitarfélagsins, þar sem því er haldið fram að börn hafi verið áreitt af nokkrum aðilum í strætó.
Í færslunni sem meðal annars er birt í á Facebook-síðunni Reykjanesbær – Gerum góðan bæ betri er því haldið fram að um kynferðislega áreitni hafi verið að ræða og að lögregla hafi verið kölluð til í tvígang. Miklar umræður hafa spunnist um málið og ljóst að uggur er í íbúum Reykjanesbæjar vegna málsins.