Nýjast á Local Suðurnes

Bifhjólamaður sem féll af hjóli sínu og slasaðist grunaður um ölvunarakstur

Ökumaður bifhjóls sem féll af hjóli sínu við Mánatorg í Reykjanesbæ í gær er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn. Hann slasaðist talsvert, meðal annars á höfði og var að auki talinn vera fótbrotinn. Hann var fluttur á Landspítala.

Áður höfðu orðið tvö slys þar sem hjól komu við sögu. Ökumaður vespu missti stjórn á henni á göngustíg í Grindavík með þeim afleiðingum að hann ók út af og rann niður brekku sem lá við veginn. Sjúkraflutningamenn mættu á staðinn og hlúðu að honum. Þá barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um umferðarslys þar sem bifreið var ekið utan í hjólreiðamann á Sandgerðisvegi. Hann kastaðist ásamt hjólinu út í vegkant. Meiðsl hans voru ekki talin alvarlegs eðlis.