Víða hálka á Suðurnesjum

Mjög hált er víða innanbæjar á Suðurnesjum í augnablikinu auk þess sem hálka er syðst á Reykjanesbraut og á Grindavíkurvegi.
Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar kemur fram að hált sé á Reykjanesbraut frá Vogaafleggjara að flugstöð. Unnið er að hálkuvörn.