Nýjast á Local Suðurnes

Það verður sungið og dansað á þrettándagleði í Vogum

Árleg þrettándagleði verður haldin í sveitarfélaginu Vogum þann 6. janúar næstkomandi. Á dagskránni er meðal annars kyndlaganga ásamt kóngi og drottningu í broddi fylkingar, gangan hefst við félagsmiðstöðina klukkan 18. Gengið verður niður Hafnargötuna, inn á göngustíg í átt að skólanum og endað hjá brennunni við skólann. Brennan er í boði Lionsklúbbsins Keilis.

Eftir brennuna verður haldið í Tjarnarsalinn, þar verður mikil gleði, sungið og dansað. Allir 12 ára og yngri fá glaðning. Veitt verða verðlaun fyrir skemmtilega búninga.

Nú er um að gera að finna gömlu búningana sína og skella sér í göngu og hafa gaman saman. Boðið verður uppá andlitsmálun fyrir yngri krakkana í félagsmiðstöðinni frá klukkan 17:00-17:50.

Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar Skyggnis verður opinn á þrettándanum frá kl 14:00-17:00.