Nýjast á Local Suðurnes

Sat fastur á grjóti á hringtorgi

Helgin var að venju annasöm hjá lögreglunni á Suðurnesjum, en á meðal þess sem menn þar á bæ þurftu að huga að var bifreið sem ekið var upp á hringtorg við Njarðarbraut. Þar endaði hún ofan á grjóti og sat föst, það föst að kalla þurfti út kranabifreið til að lyfta henni ofan af grjótinu og fjarlægja hana.

Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af rúmlega þrítugum ökumanni sem aldrei hafði öðlast ökuréttindi. Tveir ökumenn voru svo grunaðir um fíkniefnaakstur og hafði annar þeirra fíkniefni í fórum sínum.