Nýjast á Local Suðurnes

Sjö fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Grindavíkurvegi

Sjö slösuðust í árekstri þriggja bíla á Grindavíkurvegi. Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans en fjórir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg.

Grindavíkurvegi var lokað við Seltjörn vegna slyssins, en til stendur að opna veginn á næstu mínútum.