Nýjast á Local Suðurnes

Vilja afdráttarlaus svör frá bæjarfulltrúum varðandi kísilver

Andstæðingar stóriðju í Helguvík hafa sent bæjarfulltrúum í Reykjanesbæ formlega fyrirspurn varðandi skoðun þeirra á uppbyggingu kísilvera í Helguvík. Samtökin óska einnig eftir stuðningi bæjarfulltrúa við að stöðva rekstur kísilvers United Silicon og uppbyggingu kísilvers Thorslil í Helguvík.

Bæjarfulltrúum er gefinn frestur til 15. september til að svara spurningum samtakanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Andstæðingum stóriðju í Helguvík, sem má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

Formleg fyrirspurn til hvers og eins bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar.

Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar í bæjarfélaginu varðandi kísilver United Silicon:

1. Ert þú sem bæjarfulltrúi með eða á móti uppbyggingu kísilvera í Helguvík og tilvonandi uppbyggingu Kísilvers Thorsil í Helguvík ?

2. Ef þú ert á móti. Ert þú sem bæjarfulltrúi tilbúinn að koma í samstarf með ASH og Umhverfis- og Auðlindaráðherra til að koma í veg fyrir tilvonandi uppbyggingu kísilvers Thorsil og formlega óska eftir því að stöðva rekstur kísilvers United Silicon fyrir fullt og allt.

3. Ef þú ert með. Þá óskum við hjá ASH formlega eftir því að þú segir þig frá störfum sem bæjarfulltrúi Reykjanesbæjar þegar í stað þar sem ASH telur að þú þjónir ekki hagsmunum né vilja meirihluta íbúa Reykjanesbæjar.

Ekki er óskað eftir svari frá bæjarstjóra fyrir hönd bæjarfulltrúa. Svar óskast í síðasta lagi þann 15.09.2017.

Virðingarfyllst
Andstæðingar stóriðju í Helguvík