Nýjast á Local Suðurnes

Kviknaði í út frá samlokugrilli

Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Ásbrú í vik­unni eftir að tilkynnt hafði verið um eld í íbúð. Þar hafði  sam­lokugrill verið skilið eft­ir í sam­bandi og kviknað í því. Skemmd­ir urðu óveru­leg­ar en reykræsta þurfti íbúðina.

Þá var til­kynnt að kveikt hefði verið í blaðakassa í Kefla­vík. Eld­ur­inn hafði verið slökkt­ur þegar lög­regla kom á vett­vang og leit að þeim sem þar voru að verki bar ekki ár­ang­ur.