Nýjast á Local Suðurnes

Stórt tap hjá Njarðvíkingum á Sauðárkróki

Njarðvíkingar áttu aldrei möguleika gegn sterku liði Tindastóls þegar liðin mættust í Dominos-deildinni í körfuknattleik á Sauðárkróki í kvöld. Stólarnir hreinlega völtuðu yfir máttlaus ljónin og lönduðu 28 stiga sigri, 100-72.

Tindastólsmenn tóku völdin strax í fyrsta leik­hluta á meðan Njarðvíkingar voru með allt á hæum sér og var staðan 25-9 fyr­ir Tinda­stól að honum loknum, og það verðskuldað. 23 stig skildu liðin að í leikhléi, 51-28.

Stólarnir náðu svo 40 stiga forskoti í þriðja leikhluta og fóru að leyfa sér að slaka á enda leikurinn unninn á þeim tímapunkti. Lokatölur eins og áður sagði 100-72 fyrir heimamenn.

Corbin Jackson og Stefan Bonneau voru stigahæstir Njarðvíkinga en þeir skoruðu fimmtán stig hvor. Njarðvík er með tvö stig, í neðri hluta deildarinnar, eftir fjórar umferðir.