Nýjast á Local Suðurnes

Telja ógerlegt að fá menntað fólk til starfa á einkareknum ungbarnaleikskólum

Samtök dagforeldra á Suðurnesjum mótmæla því harðlega að gerður verði þjónustusamningur vegna einkarekinna ungbarnaleikskóla í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í bréfi sem samtökin sendu á Fræðsluráð sveitarfélagsins og tekið var fyrir á fundi þess á dögunum.

Samtökin telja að ógerlegt sé fyrir einkarekna ungbarnaleikskóla að manna stöður með menntuðum leikskólakennurum, nema þeir verði “sóttir” af leikskólum í sveitarfélaginu. Samtökin telja einnig að mögulegt sé að bæta samstarf dagforeldra og leikskólanna með ýmsum hætti, til að mynda varðandi undirbúning barna fyrir leikskólagöngu og að sveitarfélagið styrki dagforeldra til kaupa á aðföngum.

Þá segir í bréfinu að könnun hafi verið gerð á meðal dagforeldra um hvort þeir myndu skoða þann möguleika að starfa á einkareknum ungabarnaleikskólum á svæðinu. Allir aðspurðir svöruðu því neitandi.