Nýjast á Local Suðurnes

Ofsaveður í vændum – Rauðar viðvaranir

Veðurstofa hefur fært viðvaranir upp á rautt fyrir þrjú spásvæði, höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa og Suðurland.

Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri, 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni.

Fólki er ráðlagt að ganga vel frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum.

Foreldrum er einnig bent á að fylgjast vel með hvernig skólahaldi verður háttað. Sjá má viðvaranir og tímasetningar þeirra á vef veðurstofunnar https://www.vedur.is/vidvaranir