Nýjast á Local Suðurnes

Þeim fjölgar mikið sem fá greiddan framfærslustyrk

Þeim einstaklingum sem fá greiddan framfærslustyrk frá Reykjanesbæ hefur fjölgað mikið það sem af er ári sé miðað við árið á undan. Þetta kemur fram í fundargerð Velferðarráðs sveitarfélagsins.

Í janúar 2020 fékk 121 einstaklingur greiddan framfærslustyrk frá Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr. 15.631.698. Í sama mánuði 2019 fengu 63 einstaklingar greiddan framfærslustyrk. Í febrúar 2020 fengu 120 einstaklingar greiddan framfærslustyrk frá Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr. 16.598.172. Í sama mánuði 2019 fengu 79 einstaklingar greiddan framfærslustyrk. Í mars 2020 fengu 123 einstaklingar greiddan framfærslustyrk frá Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr. 16.903.579. Í sama mánuði 2019 fengu 90 einstaklingar greiddan framfærslustyrk.