sudurnes.net
Erfiðar aðstæður á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs - Local Sudurnes
Nokkuð hefur verið um að flugferðum frá Keflavíkurflugvelli hafi verið seinkað í dag, en aðstæður á flugvellinum eru erfiðar vegna veðurs. Samkvæmt upplýsingum sem Suðurnes.net hefur eftir starfsfólki á vellinum hefur gengið erfiðlega að ferma og afferma vélar í dag vegna veðursins auk þess sem lengri tíma hefur tekið að afísa flugvélar. Nú undir kvöld hefur hvesst allhressilega og hafa landgangar verið teknir úr notkun og því ljóst að einhverjar tafir verða á flugi í kvöld. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkMygla í Holtaskóla – Enn kennsla í heilsuspillandi húsnæðinuRafmagnslaust í hluta Innri – NjarðvíkurÞjónustuskerðing á HSS í sumarEiga í samskiptum við FBI vegna rannsóknar á sprengjuhótunSkoða útfærslu fasteignagjalda í GrindavíkVon á sjö vélum á KEF á mánudagSlegist um síðustu lóðirnar í DalshverfiLeita að einstaklingi við gosstöðvarnarRóbert fer í greiningu á sameiningarkostum