Suðurnesin Covid-laus á ný
Enginn sætir einangrun og enginn er í sóttkví á Suðurnesjum vegna Covid-19. Þetta má sjá á vef Landlæknis og Almannavarna, covid.is.
Á landinu öllu eru 31 í einangrun og 25 í sóttkví, langflestir á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt fyrrnefndum vef.