Nýjast á Local Suðurnes

“Náttúrulegar” hraðahindranir í Reykjanesbæ

Það er óhætt að sega að starfsmenn áhaldahúss Reykjanesbæjar bregðist fljótt og vel við ábendingum íbúa, en töluvert hefur verið biðlað til bæjaryfirvalda um að setja upp hraðahindranir hér og þar um bæinn.

Athyglisvert: Það gæti verið gott að tala við Svenna

Nú hafa snjómokstursmenn sveitarfélagsins gert sitt besta til að bregðast við þessum óskum íbúanna og sett upp “náttúrulegar” hraðahindranir á ýmsum stöðum – Og það úr snjó eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem fengin var að láni úr Facebook-hópnum “Reykjanesbær-Gerum góðan bæ betri”, en þar hafa skapast líflegar umræður um málið og óhætt að segja að menn séu missáttir við þetta framtak snjómokstursmanna.

snjomokstur hradahindrun

Ódýr leið við að setja upp hraðahindranir í sveitarfélagi í kröggum