Nýjast á Local Suðurnes

Bæjarráð Reykjanesbæjar: Fall WOW-air mun hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tíma

Bæjarráð Reykjanesbæjar sendi frá sér bókun vegna stöðunar á rekstri lággjaldaflugfélagsins WOW air á fundi ráðsins í morgun.

Í bókuninni segir: „Bæjarráð harmar að starfsemi WOW air hafi verið stöðvuð. Ljóst er að þetta áfall mun hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tíma, ekki síst fyrir Reykjanesbæ þar sem mikil fjöldi starfsmanna býr. Bæjarráð leggur áherslu á að hugað sé að velferð og hagsmunum allra starfsmanna og fyrirtækja sem þetta mun hafa áhrif á.“