Grunaður um ölvun á 148 km hraða
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum mældi á 148 km hraða, þar sem hámarkshraði er 90 km, á Reykjanesbraut um helgina var grunaður um ölvun við akstur. Þá ók hann bifreiðinni sviptur ökuréttindum. Fáeinir ökumenn til viðbótar voru færðir á lögreglustöð, grunaðir um vímuefnaakstur.
Þá voru tveir, auk þess fyrstgreinda, kærðir fyrir of hraðan akstur og skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar í umferðinni.