Nýjast á Local Suðurnes

Hvetja íbúa og starfsmenn sveitarfélagsins til að sofa átta tíma hið minnsta

Heilsu- og forvarnarvika verður haldin sameiginlega á Suðurnesjum dagana 30. september til 6. október. Heildardagskrá mun senn líta dagsins ljós og verður hún vel sýnileg á vef Reykjanesbæjar.

Í Reykjanesbæ er þema vikunnar „Átta tíma svefn a.m.k.“ og eru bæði íbúar og starfsmenn bæjarins hvattir til að huga vel að því. Starfsfólki í Ráðhúsi verður boðið upp á fyrirlestur hjá svefnráðgjafa.

Reykjanesbær er heilsueflandi sveitarfélag. Einn mikilvægasti þáttur heilsu er nægur svefn. Rannóknir hafa sýnt að fólk sefur ekki nóg og því vill Reykjanesbær í heilsu- og forvarnarviku minna á mikilvægi átta tíma svefns. Svefn hefur áhrif á heilsu fólks og líðan, andlega og líkamlega. Í nýlegri grein á vef Náttúrulækningafélags Íslands kemur fram að ónógur svefn getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsvandamál, eins og:

  • Offitu, sykursýki, hjartasjúkdóma, alzheimer og krabbamein.
  • Skerta endurheimt og vöðvauppbyggingu.
  • Minnkaða getu til að læra nýja hluti og skapa minningar.
  • Minni einbeitingu, orku og skilvirkni.
  • Ofvirkni og ADHD

Hægt er að kynna sér greinina í heild með því að smella hér