sudurnes.net
Reykjanesbær auglýsir eftir mannauðsstjóra - Local Sudurnes
Reykjanesbær auglýstir starf mannauðsstjóra laust til umsóknar. Óskað er eftir kraftmiklum og metnaðarfulltum einstaklingi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí nk. Það er Hagvangur sem sér um ráðningu mannauðsstjóra fyrir Reykjanesbæ. Mannauðsstjóri leiðir daglegan rekstur, uppbyggingu og þróun mannauðsmála í samstarfi við sviðsstjóra, deildastjóra og forstöðumenn stofnanna. Um er að ræða spennandi starf á miklum uppbyggingartímum. Starfið tilheyrir stjórnsýslusviði Reykjanesbæjar. Helstu verkþættir: Ábyrgð á þróun og eftirfylgni starfsmannastefnu Reykjanesbæjar Ábyrgð á helstu mannauðsferlum – þróun þeirra, innleiðingu, þjálfun og umbótum Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur varðandi ráðningar, þjálfun, fræðslu og þróun starfsmanna Aðkoma að launasetningu og málum er tengjast starfsmati. Þátttaka í stefnumótun fyrir sveitarfélagið í heild Menntunar og hæfniskröfur: Háskólapróf á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi Yfirgripsmikil reynsla af mannauðsmálum Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu Reynsla og hæfni til að innleiða breytingar og stjórna þeim Framúrskarandi samskiptahæfni Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi Sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Með því að smella á þennan tengil opnast starfsauglýsingin á vef Hagvangs í nýjum glugga. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja [...]