Nýjast á Local Suðurnes

Kæra útboð Isavia um aðstöðu hópferðabifreiða á Keflavíkurflugvelli

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Útboð Isavia um aðstöðu hópferðabifreiða við Keflavíkurflugvöll hefur verið kært til kærunefndar útboðsmála, vegna mismunar gagnvart bjóðendum, en Félag hópferðaleyfishafa telur útboðsgögnin vera óvönduð og gefa möguleika á mismunun gagnvart bjóðendum. Isavia er því óheimilt að gera samning þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni.

„Ýmsar upplýsingar, sem sumir hafa og aðrir hafa ekki, eru ekki gefnar upp og þar með sitja ekki allir við sama borð,“ sagði Bjarki Sveinsson lögmaður, hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur og lögmaður Félags hópferðaleyfishafa við Vísi.is. Á hann þar til að mynda við upplýsingar um farþegafjölda og hversu mikil notkun er á samgöngunum á þessu svæði. „Það er aðalatriði fyrir þessa bjóðendur að geta gert áætlanir. Tveir aðilar eru búnir að sinna þessu áður og vita nákvæmlega allar fjöldatölur og eru þar með betur í stakk búnir til að gera tilboð en aðrir.“

Einnig setur félagið út á önnur hópferðastæði á svæðinu sem Isavia hyggst rukka fyrir. Samkvæmt Bjarka hafa ekki fengist upplýsingar um hvernig þessi gjaldtaka verður útfærð en að ljóst sé að það sé mikilvægur áhrifaþáttur fyrir bjóðendur. „Ef Isavia rukkar hátt gjald fyrir stæðin er ljóst að þeir aðilar sem fá samninginn sitja mjög vel að vígi en samningurinn er mun verðminni ef lítið verður rukkað fyrir stæðin. Fyrir hönd félags Hópferðaleyfishafa tel ég að þetta raski jafnræði og sé ekki gott fyrir frjálsa samkeppni,“ segir Bjarki.