Nýjast á Local Suðurnes

Tveir fluttir á HSS eftir harðann árekstur á Hringbraut

Harður árekstur varð í vikunni á Hringbraut þegar bifreið var ekið aftan á aðra sem var að nálgast gatnamót á hægri ferð. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar hafði blindast af sólinni sem var lágt á lofti og því fór sem fór. Báðir ökumennirnir voru fluttir undir læknis hendur á HSS og fjarlægja þurfti bifreiðirnar með dráttarbifreið.

Þá varð þriggja bíla árekstur í Njarðvík og tvær bifreiðar rákust jafnframt  saman á Ásbrú. Skemmdir urðu á ökutækjunum en ekki slys á fólki.