Nýjast á Local Suðurnes

Helga Ragnheiður millistjórnandi ársins

Yfir 50 tilnefningar bárust til verðlaunanna, þar af 25 í flokki millistjórnenda. Auk verðlaunahafans var annar millistjórnandi Isavia tilnefndur, Helga Erla Albertsdóttir, deildarstjóri reikningshalds og uppgjöra.Við afhendingu var Helgu lýst sem hversdagslegum og hógværum leiðtoga. Hamhleypu til verka sem er umhugað um velferð annarra. Þá var hún sögð einstaklega góður leiðbeinandi sem hefur tekið virkan þátt í fræðslustarfi á vinnumarkaði, segir í tilkynningu á vef Isavia.

Helga þakkaði heiðurinn og sagði það forréttindi að fá að vinna að sínum hugðarefnum með góðu samstarfsfólki og hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum morgni. Hún sagði eitt aðalmarkmið sitt sem stjórnanda og manneskju að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Verðlaunin tileinkaði Helga samstarfsfólki sínu hjá Isavia, sérstaklega teyminu sínu, fjölskyldu sinni og vinum.