Nýjast á Local Suðurnes

Röskun hjá HSS – Starfsfólk kemst ekki til vinnu

Röskun verður á þjónustu HSS í dag og á morgun vegna veðurs, en margt af starfsfólki stofnunarinnar kemst ekki til vinnu vegna lokunar á Reykjanesbraut.

Haft verður samband við alla þá sem áttu tíma sem falla niður, en ef þið eruð í vafa, hafið endilega samband.

Læknavaktin verður opin síðdegis, sem og slysa- og bráðamóttaka að sjálfsögðu, en starfsfólk HSS vill biðja fólk um að hlýta tilmælum Almannavarna og halda sig heima nema mikið liggi við.

Athugið að þessar áætlanir verða endurskoðaðar eftir því sem líður á daginn og veðurútlit skýrist.