HS Orka getur ekki tekið þátt í stóriðjuverkefnum
![audlindargardur HS Orka](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/audlindargardur-HS-Orka.jpg?resize=620%2C264)
HS Orka getur hvorki selt rafmagn sem fyrirtækið framleiðir eða nýtt virkjanakosti í nýtingarflokki til að búa til nýtt rafmagn til orkufrekra verkefna sökum þess að það er bundið í orkusölusamningi vegna álvers í Helguvík, þetta kemur fram í fréttaskýringu Kjarnans um málefni HS Orku.
Kjarninn hafði áður greint frá því að HS Orka hefði hafið gerðardómsferli til að losna undan orkusölusamningum sem fyrirtækið undirritaði við Norðurál í apríl 2007 vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Vinni HS Orka málið má teljast fullvíst að álver Norðuráls í Helguvík sé endanlega úr sögunni. Málsrök voru þau að ákvæði orkusölusamningsins hafi ekki verið uppfyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norðurál telur þetta ekki rétt og ætlar að taka til varna. Niðurstaða í gerðadómsmálinu á að liggja fyrir sumarið 2016. Þangað til gerir HS Orka lítið.