Nýjast á Local Suðurnes

Gunnar Magnús hættur með Keflavík

Gunnar Magnús Jónsson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í knattspyrnu, en stjórn deildarinnar ákvað að endurnýja ekki saming við hann.

Í tilkynningu eru Gunnari þökkuð vel unnin störf, en hann hefur þjálfað liðið síðan 2016. Liðið hefur undanfarin tvö tímabil leikið í efstu deild og mun gera áfram á næstu leiktíð.

Gunnar Magnús Jónsson lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Keflavík

Stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur hefur ákveðið að virkja endurskoðunarákvæði í samningi deildarinnar við Gunnar Magnús Jónsson um að hann láti af störfum sem þjálfari kvennaliðsins.
Gunnar Magnús hefur þjálfað meistaraflokk kvenna frá árinu 2016 og skilur við liðið í Bestu deildinni þar sem liðið hefur spilað tvö síðustu ár. Gunnar hefur unnið ötullega að framgangi og uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar í Keflavík síðustu ár enda sannur Keflvíkingur sem með ástríðu sinni og krafti hefur átt risastóran þátt í því að kvennaknattspyrnan í Keflavík hefur komist á þann stað sem hún er í dag.
Gunnar hefur náð eftirtektarverðum árangri með liðið síðustu ár og eru honum færðar bestu þakkir deildarinnar fyrir vel unnin störf, segir á Facebook-síðu Keflavíkur.