Kanadískir flugmenn afhentu Umhyggju söfnunarfé – Stoltir af því að vinna með Íslendingum
![kanada sofnun](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/06/kanada-sofnun-1.jpg?resize=620%2C264)
Kanadíski flugherinn sem verið hefur hér við land í loftrýmisgæslu safnaði fé fyrir góðu málefni á meðan dvöl þeirra stóð, meðal annars með áheitahlaupi milli Reykjavíkur og Keflavíkur til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna.
Það var Mitchell undirofursti, sem er bæði flugmaður CF-18-orrustuþotu og langhlaupari, sem hljóp 46 kílómetra leið á milli Reykjavíkur og Keflavíkur, á rétt rúmum fjórum klukkustundum. Alls söfnuðust 154.988 krónur og tóku fulltrúar Umhyggju við söfnunarfénu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli föstudaginn 16. júní.
Þátttaka kanadísku flugsveitarinnar og orrustuþotnanna í loftrýmisgæsluverkefni Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, er liður í Operation REASSURANCE, sem er framlag Kanada til öryggis- og varnaðaraðgerða bandalagsins. Félagar í sveitinni segjast stoltir af því að vinna með Íslendingum, bandamönnum sínum, að því að tryggja öryggi loftrýmisins.