sudurnes.net
Rúmlega 1100 sóttu um tæplega 300 störf - Local Sudurnes
Isavia auglýsti fyrir sumarið eftir sumarfólki í fjölbreytt störf, aðallega í flugvernd og farþegaþjónustu. Alls bárust 1.132 umsóknir og voru 286 ráðin í sumarstörf á Keflavíkurflugvelli hjá Isavia og voru um 40% þeirra konur og 60% karlar. Meðalaldur þeirra sem ráðin voru er tæplega 23 ár. Sumarstarfsfólkið okkar hefur fjölbreyttan bakgrunn og menntun en meðal þeirra eru einstaklingar sem eru að læra sálfræði, verkfræði, jarðeðlisfræði, tölvunarfræði, hönnun, lögfræði og fleira, segir í tilkynningu. Við hlökkum til að takast á við verkefni sumarsins með þessu frábæra fólki, sem mun leggja sig allt fram um að gera upplifun gesta flugvallarins sem ánægjulegasta. Meira frá SuðurnesjumLæknar björguðu lífi fíkniefnasmyglaraÞrír skólar á Suðurnesjum hlutu styrk úr SprotasjóðiSkólamatur ehf. þjónustar Garðabæ – Með besta tilboð eftir verð- og gæðakönnunHægt að bóka tíma og komast hraðar í gegnum öryggisleit á KEFArnar tekur við NjarðvíkÞrefalt fleiri lendingar á Keflavíkurflugvelli á aðfangadagLandsmót STÍ í 300 metrum liggjandi haldið á Suðurnesjum á sunnudagSamkaup fá reynslubolta frá Arion bankaBjóðast til að koma nauðsynjum til fólks í sóttkvíHótel Keflavík finnur fyrir sterku gengi krónunnar – Um 40 hópar afbókaðir á einu bretti