Nýjast á Local Suðurnes

Búast við allt að 35 m/s vindhviðum

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir, þar sem búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum undir Eyjafjöllum og á sunnan- og norðanverðu Reykjanesi. Viðvaranirnar gilda frá klukkan 20 í kvöld, 18. október, til klukkan 22 annað kvöld.

Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og afmarkaðar samgöngutruflanir líklegar. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón.