Nýjast á Local Suðurnes

Einn kjörstaður í Reykjanesbæ

Í Alþingiskosningunum laugardaginn 28. október næstkomandi munu kjósendur í Reykjanesbæ greiða atkvæði á nýjum kjörstað, Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Jafnframt hefur götum verið deilt á kjördeildir eftir stafrófsröð og er kjósendum bent á að kynna sér í hvaða kjördeild þeim ber að kjósa. Kjörskrá miðast við skráð lögheimili kjósenda hjá Þjóðskrá Íslands þann 23. september 2017.

Kjósendum er frjálst að skoða kjörskrána og liggur hún frammi í þjónustuveri Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ og á www.kosning.is.

Kjörfundur í Reykjanesbæ hefst kl 9:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.