Nýjast á Local Suðurnes

Opið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Opið er fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Suðurnesja, en úthlutað er úr sjóðnum árlega til verkefna á sviði menningar annars vegar, þar á meðal stofn- og rekstrarstyrki, og til atvinnu og nýsköpunarverkefna hins vegar.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er samkeppnissjóður sem styður við menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Sjóðurinn auglýstir eftir umsóknum einu sinni að hausti og eru þær metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Suðurnesja og reglum sjóðsins.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi.