Viðsnúningur hjá ÍAV

Íslenskir aðalverktakar, ÍAV, skiluðu 80 milljóna króna hagnaði árið 2022 eftir taprekstur árin 2021 og 2020. Afkoma félagsins batnaði um 600 milljónir á milli ára.
Tekjur ÍAV, stærsta verktakafyrirtækis landsins, jukust um 14% frá fyrra ári og námu 16,5 milljörðum í fyrra. Félagið segir að verkefni og reksturinn hafi gengið samkvæmt áætlun og að verkefnastaðan sé góð, segir í frétt á vef Viðskiptablaðsins.
Fyrirtækið hefur löngum verið stórtækt á verktakamarkaði á Suðurnesjum og er um þessar mundir meðal annars að byggja íþróttahús Stapaskóla og vinna við tvöföldun Reykjanesbrautar.