Nýjast á Local Suðurnes

Vilja upplýsingar um tafir á sorphreinsun

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar hafa óskað eftir upplýsingum varðandi tafir á sorphreinsun í sveitarfélaginu, en miklar umræður hafa farið fram á samfélagsmiðlum undanfarið varðandi tafir á sorphreinsun, en samkvæmt umræðum hafa tafir orðið í flestum hverfum.

Spurningar fulltrúa flokksins má sjá hér fyrir neðan:

„Sjálfstæðisflokkurinn óskar eftir upplýsingum um sorphreinsun í Reykjanesbær fyrir jól og fram til dagsins í dag og að bæjarstjóri komi þessum spurningum á framfæri við framkvæmdastjóra Kölku.

1. Vegna óveðurs fór hreinsun sorps í Reykjanesbæ úr skorðum. Hversu mikil seinkun var á hreinsun sorps á þeim stöðum sem ekki var um ófærð að sorpílátum að ræða?
2. Er eðlilegt að það líði fjórar vikur á milli þess sem sorp er ekki tekið, á stað þar sem snjór er ekki fyrirstaða þ.e. að íbúar hafa hreinsað frá sorpílátum?
3. Hvað annað en ófærð veldur þessari miklu seinkun á sorphreinsun?“