Nýjast á Local Suðurnes

Fjárfesta fyrir um 70 milljarða á Ásbrú

Verne Global áformar að fjárfesta fyrir hátt í 70 milljarða króna í gagnaveri sínu á Ásbrú í Reykjanesbæ á næstu fimm árum. Fyrirtækið hyggst ráðast í umfangsmikla uppbyggingu til að auka afkastagetu gagnaversins. Fjárfestingin í ár mun nema um 95 milljónum punda, eða sem nemur rúmum 16 milljörðum króna miðað við gengi dagsins í dag.

Þetta kemur fram í umfjöllun Viðskiptablaðsins, en þar segir meðal annars að móðurfélag Verne Global upplýsti nýlega um að áætluð fjárfesting á Íslandi á árunum 2023-2027 hljóði upp á 391 milljón punda og að þar af myndi fjárfesting í ár nema um 95 milljónum punda.

Til samanburðar gerðu fyrri áform félagsins ráð fyrir að fjárfesting þess á umræddu fimm ára tímabili yrði helmingi minni eða í kringum 172 milljónum punda. Áætluð fjárfesting félagsins á tímabilinu hefur því aukist um 219 milljónir punda eða um rúma 38 milljarða króna.