Nýjast á Local Suðurnes

Öryggisúttekt lokið á Grindavíkurvegi – Halda áfram að þrýsta á stjórnvöld

Vegagerðin hefur lokið við öryggisúttekt á Grindavíkurvegi forgangsraðað tillögunum sem er ætlað að bæta umhverfi vegarins og gera hættuminni þar sem slys vegna útafaksturs eru tíðust.

Skýrslan var rædd í bæjarráði Grindavíkurbæjar og telur ráðið ljóst að Vegagerðin hefur reynt eftir fremsta megni að vinna með það takmarkaða fjármagn sem til er í öryggisaðgerðir og viðhald vega en telur að auka þurfi það fjármagn verulega. Bæjaráð ítrekar því brýna nauðsyn þess að ráðast í framkvæmdir sem fyrst á veginum til að lagfæra slitlag, vegaxlir og fjölga útskotum.

Þá munu bæjarstjórn Grindavíkur, bæjarstjóri og samráðshópur halda áfram að þrýsta á stjórnvöld og fjárveitingavaldið að koma veginum á samgönguáætlun, enda er vegurinn bæði fjölfarinn og hættulegur auk þess sem mikilvægt að aðgreina akstursstefnur sem fyrst.