Nýjast á Local Suðurnes

Heitavatnslögn fór í sundur

Svokölluð Njarðvíkuræð stofnlögn hitaveitu frá Svartsengi til Fitja fór í sundur undir hrauni, samkvæmt heimildum sudurnes.net, og því mun ekki berast heitt vatn til Reykjanesbæjar næstu daga.

Eftir því sem næst verður komist er hafinn undirbúningur að vinnslu við nýja lögn.

Ekki náðist í fulltrúa HS Orku og HS Veitna við vinnslu fréttarinnar.