Nýjast á Local Suðurnes

Helguvíkurvegi lokað tímabundið

Myndin tengist fréttinni ekki beint Mynd: Facebook/Ellert Skúlason

Helguvíkurvegi, á milli Bergvegar og Hólmbergsbrautar hefur verið lokað tímabundið vegna endurnýjunar.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í lok nóvember og opnað verði fyrir umferð aftur í fyrstu viku desember, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.