sudurnes.net
Útilokað að ráðast í viðgerðir - Local Sudurnes
Svo virðist sem hitaveitulögn hafi farið í sundur undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir, samkvæmt tilkynningu frá HS Orku. Íbúum er bent á að fylga leiðbeiningum Almannavarna í framhaldi. Tilkynningin í heild: Hjáveitulögn meðfram Njarðvíkuræðinni fór í sundur undir miðju hrauni um kl. 22:30 í kvöld og ber hún því ekki heitt vatn lengur til Reykjanesbæjar. Væntanlega laskaðist lögnin við hraunrennslið í gærmorgun og seint í kvöld, þegar aukið var við vatnsdælingu, virðist hún hafa brostið endanlega. Staðsetningin er undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir þar. Þegar er hafinn undirbúningur að lagningu nýrrar lagnar í nánu samstarfi við almannavarnir en ljóst er að sú framkvæmd mun taka einhverja daga. Ekki er hægt að áætla nákvæmari tímasetningar á þessari stundu. Brýnt er að fylgja leiðbeiningu almannavarna og HS Veitna varðandi viðbrögð í þessum erfiðu og krefjandi aðstæðum. Meira frá SuðurnesjumYtri-Njarðvík komin að þolmörkumÍbúar Þórkötlustaðahverfis fá að sækja nauðsynjarDregið úr gasmengun við gosstöðvarnarNeyðarstjórn HS Veitna virkjuðSkerðing á starfsemi Reykjanesbæjar vegna heitavatnsleysisLýsa yfir óvissu­stigi vegna jarðskjálfta á Reykja­nesiÍbúafundur í SandgerðiFimm klukkustunda rafmagnsleysi í hluta KeflavíkurVelja jólahús í Sandgerði og [...]