Nýjast á Local Suðurnes

Fjölgun í tilkynningum til barnaverndar

Á árinu 2020 hefur orðið aukning á barnaverndartilkynningum er varðar vanrækslu umsjón og eftirlit, áfengis og/eða fíkniefnaneysla foreldra.

Þannig bárust 58 tilkynningar frá janúar til apríl, en á sama tíma árið 2019 voru þær 46. Þá hefur einnig orðið aukning á barnaverndartilkynningum um heimilisofbeldi, frá janúar til apríl bárust 23 tilkynningar en á sama tíma 2019 voru þær 14.

Þetta kemur fram í fundargerð barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar, en þar segir einnig að í apríl hafi borist 67 tilkynningar vegna 52 barna og fjöldi nýrra mála í könnun voru 20, en á sama tíma árið 2019 voru tilkynningarnar 44 vegna 30 barna og fjöldi nýrra mála í könnun voru 10. Í apríl 2020 bárust flestar tilkynningar frá lögreglu, öðrum, foreldrum og ættingjum.