Nýjast á Local Suðurnes

Metþátttaka í Strandarhlaupi Þróttar

Strandarhlaup UMF Þróttar í Vogum var haldið Þriðja árið í röð síðastliðinn laugardag og var metþátttaka í hlaupinu að þessu sinni en 56 hlauparar tóku þátt.

Langar Ungmennafélaginu Þrótti að þakka Landsneti, Sveitarfélaginu Vogum, Brooks, Intersport, hlaup.is og Nordic Deli sem gáfu öllum hlaupurum samlokur að hlaupi loknu kærlega fyrir þeirra aðstoð.

Einnig þökkum við öllum þeim sjálfboðaliðum sem sinntu brautargæslu, tímagæslu og öðrum störfum fyrir þeirra aðstoð. Án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Okkur reiknast það til að í kringum 18 sjálfboðaliðar voru að vinna í kringum hlaupið. Hægt er að nálgast öll úrslitin inná hlaup.is, segir í tilkynningu frá Þrótti.

Ungmennafélagið Þróttur þakkar öllum þeim 56 hlaupurum sem tóku þátt í Strandarhlaupinu. Sjáumst hress og kát aftur á næsta ári.

Sigurvegarar helgarinnar voru:
5. km kvenna Kolbrún Georgsdóttir 23:53
5. km karla Þórólfur Ingi Þórsson 17:10
10.km kvenna Anna Konráðsdóttir 47:10
10.km karla Arnar Pétursson 35:19

Hægt er að nálgast öll úrslit inná hlaup.is og sjá myndir inná Facebookar-síðu Ungmennafélagsins Þróttar.