Nýjast á Local Suðurnes

75 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í júlí

Innri - Njarðvík

Á Reykjanesi var 75 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í júlí. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um eignir í sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir.

Heildarveltan var 1.759 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,5 milljónir króna. Af þessum 75 voru 58 samningar um eignir í Reykjanesbæ. Þar af voru 27 samningar um eignir í fjölbýli, 28 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.372 milljónir króna og meðalupphæð á samning 23,7 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þjóðskrár.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar eða misgamlar, segir einnig í tilkynningunni.