Nýjast á Local Suðurnes

Unnt að sjá hljóðmælingar á Keflavíkurflugvelli í rauntíma

Isavia kynnti hljóðmælingakerfi sem verið er að setja upp á Keflavíkurflugvelli á íbúafundi, sem haldinn var í Reykjanesbæ um miðjan maí. Mælingarnar sem um ræðir verða opnar almenningi á vef Isavia og þannig munu íbúar betur geta fylgst með hljóðstigi frá flugumferð og gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði.
Kerfið er sett upp af danska fyrirtækinu Brüel & Kjær og hefur verið unnið að því um nokkurra mánaða skeið. Nú hefur fyrsti fasi kerfisins verið settur í loftið og þar er unnt að sjá hljóðmælingar frá einum mælanna í rauntíma, en í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar. Tenging við flugupplýsingar hefur tafist í forritun en búist er við að þær verði komnar inn í byrjun júlí.
Hér er að finna hlekk á hljóðmælingarnar: 
Bruel & Kjær býður einnig upp á app fyrir iPhone og Android: