Fá níu nýja leikmenn

Fjórðu deildarlið GG hefur fengið níu nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í deildinni í sumar.
Daníel Andri Pálsson, Hlynur Kári Steinarsson, Luka Sapina og Dusan Lukic koma á láni frá Grindavík.
Birkir Snær Sigurðsson og Andri Jón Sveinsson koma frá Grindavík. Þeir eru báðir fæddir 2000 og eru að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki.
Fernando Valladres Serrano og Jaizkibel Roa Ergote koma frá KM. Fernando er 24 ára sóknarmaður sem spilaði 10 leiki fyrir KM í fyrra og Jaizkibel er 29 ára gamall markmaður sem spilaði 11 leiki með KM í fyrra.
Einnig gengur þjálfari liðisns Sigurður Elíasson yfir í félagið en hann er með mikla reynslu í neðri deildum og á hann 74 leiki fyrir Víði.