sudurnes.net
Fá níu nýja leikmenn - Local Sudurnes
Fjórðu deildarlið GG hefur fengið níu nýja leikmenn til liðs við sig fyrir átökin í deildinni í sumar. Daníel Andri Pálsson, Hlynur Kári Steinarsson, Luka Sapina og Dusan Lukic koma á láni frá Grindavík. Birkir Snær Sigurðsson og Andri Jón Sveinsson koma frá Grindavík. Þeir eru báðir fæddir 2000 og eru að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki. Fernando Valladres Serrano og Jaizkibel Roa Ergote koma frá KM. Fernando er 24 ára sóknarmaður sem spilaði 10 leiki fyrir KM í fyrra og Jaizkibel er 29 ára gamall markmaður sem spilaði 11 leiki með KM í fyrra. Einnig gengur þjálfari liðisns Sigurður Elíasson yfir í félagið en hann er með mikla reynslu í neðri deildum og á hann 74 leiki fyrir Víði. Meira frá SuðurnesjumKeflavíkurstúlkur áfram í BorgunarbikarnumRamsay og Ray Anthony þjálfa GG í 4. deildinniVíðir Garði með flottan sigur á Vængjum JúpitersEnginn flótti frá Þrótti – Fjórir nýjir leikmenn til liðsinsÞrír öflugir skrifa undir hjá VíðiSamúel Kári færir sig um setNjarðvíkingar semja við leikmann frá KróatíuRagnheiður Sara á ferð og flugi – Tekur þátt í Dubai Fitness ChampionshipSuðurnesjamenn færa sig um setGG ræður eftirmann Ray Anthonys