Nýjast á Local Suðurnes

Vilja að starfsfólk fái að gista í verbúðum í Grindavík

Framkvæmdastjórar fiskvinnslufyrirtækjanna Vísis og Þorbjarnar í Grindavík vilja að starfsfólk þeirra fái að dvelja og gista í verbúðum í bænum. Aðallega er um að ræða erlent vinnuafl fyrirtækjanna.

Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta, en þar segja báðir framkvæmdastjórar að verbúðir fyrirtækjanna séu vel staðsettar, við Hafnargötu, með tilliti til flóttaleiða. Þá kemur fram að þeir og starfsfólkið, sem sumt er staðsett á Suðurlandinu, telji að það geti beinlínis verið hættulegt að aka þetta langa leið til vinnu yfir vetrartímann.

Þá benda framkvæmdastjórarnir á að um sé að ræða fólk sem ekki er með börn auk þess sem það væri hægt að hafa vakt á nóttinni ef það þyrfti að rýma í skyndingu.